
FH stelpur fá Fram í heimsókn
Fram stelpum var spáð efsta sæti N1 deildar kvenna og hafa byrjað vel í vetur og unnið alla fimm leiki sína. Þær sitja á toppnum tveimur stigum fyrir ofan Val og Stjörnuna.
FH hefur byrjað mótið ágætlega en liðið hefur unnið tvo leiki af fjórum. Liðið er í fimmta sæti tveimur stigum á eftir Fylki en á leik til góða. Búast má við því að baráttan um sæti í úrslitakeppninni verði sérstakleg hörð og því skiptir hvert stig miklu máli.
Það má reikna með hörkuleik en þrír uppaldir FH-ingar leika með liði Fram en það er örvhenta tríóið; Birna Berg, Hildur og Hafdís en þær tvær síðastnefndu eru þó frá vegna meiðla.
Við hvetjum alla stuðningsmenn FH til að mæta og styðja stelpurnar okkar.
Áfram FH!