FH stelpur fá Fram í heimsókn

FH stelpur fá Fram í heimsókn

Lið FH og Fram mætast í Kaplakrika á laugardaginn 6. nóvember klukkan 16.00.

Fram stelpum var spáð efsta sæti N1 deildar kvenna og hafa byrjað vel í vetur og unnið alla fimm leiki sína. Þær sitja á toppnum tveimur stigum fyrir ofan Val og Stjörnuna.

FH hefur byrjað mótið ágætlega en liðið hefur unnið tvo leiki af fjórum. Liðið er í fimmta sæti tveimur stigum á eftir Fylki en á leik til góða. Búast má við því að baráttan um sæti í úrslitakeppninni verði sérstaklega hörð og því skiptir hvert stig miklu máli.

Það má reikna með hörkuleik en þrír uppaldir FH-ingar leika með liði Fram en það er örvhenta tríóið; Birna Berg, Hildur og Hafdís en þær tvær síðastnefndu eru þó frá vegna meiðla.

Við hvetjum alla stuðningsmenn FH til að mæta og styðja stelpurnar okkar.

Áfram FH!

Aðrar fréttir

Secret Link