FH – Þróttur á sunnudag

FH – Þróttur á sunnudag

Mótherji: Þróttur
Hvar: Kaplakrikavöllur 
Hvenær: Sunnudaginn 24.júlí 
Klukkan: 19:15

Næsti leikur FH er á sunnudaginn gegn Þrótti í pepsi-deildinni. Mætum tímanlega á völlinn og látum vel í okkur heyra.

Allir á völlinn og áfram FH!

20160720-DSC_5342

BAKHJARLAR: 
Við munum halda áfram með það fyrirkomulag sem var í Sjónarhól í fyrra. Það er að segja, salurinn opnar fyrir Bakhjarla klukkutíma fyrir leik þar sem matur verður í boði ásamt því að einhver úr þjálfarateyminu og jafnvel gestir mæta á svæðið og fara yfir leikinn sem framundan er. Með þessu vonumst við til þess að fleiri Bakhjarlar mæti tímanlega á völlinn og drekki í sig stemninguna. Í hálfleik verður svo boðið upp á kaffi ásamt veitingasölu.

FH – Radio: 
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á mánudag. Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net 

Pyngjan:
Að lokum viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sloppið við það að standa í miðasöluröð á leikdag með því að nota Pyngjuna, sem er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina.
Pyngjan er app sem hægt er að nota til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur: http://www.dhs.is/

Aðrar fréttir