FH til Svíþjóðar eða Aser­baíd­sj­an

FH til Svíþjóðar eða Aser­baíd­sj­an

FH-ing­ar mæta Elfs­borg frá Svíþjóð eða In­ter Baku frá Aser­baíd­sj­an í 3. um­ferð Evr­ópu­deild­ar UEFA í knatt­spyrnu ef þeim tekst að slá hví­trúss­neska liðið Nem­an Grodno út þegar liðin mæt­ast í Kaplakrika næsta fimmtu­dags­kvöld.

Dregið var til 3. um­ferðinn­ar í Nyon í Sviss rétt í þessu.

Nem­an og FH skildu jöfn, 1-1, í fyrri leik sín­um í Hvíta-Rússlandi í gær og mögu­leik­ar FH eru því góðir fyr­ir seinni  viður­eign­ina.

Aser­arn­ir í In­ter Baku eru með góða stöðu í ein­víg­inu við Elfs­borg því þeir unnu fyrri leik­inn í Svíþjóð í gær­kvöld, 1-0, og fá því gullið tæki­færi til að gera út um viður­eign­ina á sín­um heima­velli í næstu viku.

Fengið af mbl.is http://www.mbl.is/sport/efstadeild/2014/07/18/fh_til_svithjodar_eda_aserbaidsjan/

Aðrar fréttir