Fjölmenn brautarhlaup í Krikanum

Fjölmenn brautarhlaup í Krikanum

Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, hélt í samstarfi við FH innanfélagsmót þar sem keppt var í 3000m hlaupum karla og kvenna auk spjótkasts karla og sleggjukasts kvenna. Skemmst er frá því að segja að þátttaka var gífurleg á mælikvarða íslenskra brautarhlaupa, 31 karl og 8 konur hlupu 3000m en heldur var þátttakan minni í köstunum að þessu sinni.
Í kvennaflokki kom Gerður Rún Guðlaugsdóttir Langhlauparafélaginu fyrst í mark á tímanum 10:43,61mín, önnur varð Jóhanna Eiríksdóttir Laugaskokki á 14:13,51mín og þriðja Sólveig M. Kristjánsdóttir FH á 14:18,08mín. Fyrstur karla varð Stefán Guðmundsson Breiðabliki á tímanum 9:31,65mín, Burkni Helgason ÍR annar á 9:45,09mín og þriðji Jósep Magnússon UDN á 10:03,39mín.
Þau Gerður og Stefán hlutu að launum glæsileg verðlaun; ASICS hlaupaskó, Afrekaskrá í lengri vegalengdum eftir Sigurð Pétur Sigmundsson og gullverðlaunapeninga um hálsinn.
Framfarir stefna að fleiri hlaupum af þessu tagi í framtíðinni og vænta áframhaldandi góðra undirtekta íslenskra hlaupara.

Aðrar fréttir