Frá Almannavörnum

Þriðja bylgjan í COVID-19 hófst með hvelli í síðustu viku og voru fréttir af nýjum smitum vonbrigði, en frá 14. september hafa alls komið upp 398 smit og af þeim eru 354 (87%) smit á höfuðborgarsvæðinu. Þann 14. september voru 62 einstaklingar í einangrun og 400 í sóttkví þessar tölur hafa hækkað gífurlega og eru nú 400 í einangrun og 2.362 í sóttkví.
Þetta er alvarleg staða og við leggjum allt kapp á að tryggja að skóla og tómstundarstarf barna og þar með talið íþróttastarf haldist óskert. Til að svo megi vera í þessari bylgju þarf að grípa til aukinna ráðstafana til 5. október.
Vegna alvarleika málsins og fjölda smita var ákveðið á vikulegum fundi með stjórnendum íþróttastarfs sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu í gær, að hafa aukna aðgát í íþróttahúsnæði sveitarfélaganna.
Ráðstafanir sem gripið verður til fyrir utan hefðbundnar sóttvarnir eru eftirfarandi:
• Aðgengi áhorfenda á leiki og æfingar barna eru bannaðar.
• Foreldrar og forráðamenn séu ekki viðstödd æfingar og frístundastarf barna.
• Foreldrar og forráðamenn fylgi fyrirmælum um innkomu inn í íþróttahúsin.
• Starfsemi sem ekki tengist íþróttahúsunum sé ekki leyfð t.d. óformlegt íþróttastarf fullorðinna sem ekki tilheyrir ÍSÍ.
Fundað er reglulega með stjórnendum íþróttastarfs sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til að samræma verklag, miðla reynslu og upplýsingum milli aðila. Ákvarðanir um næstu skref verða teknar með þessum aðilum og næsti fundur er fyrirhugaður fimmtudaginn 1. október og verða þær sendar ykkur.
Við höfum fullan skilning á því að allir séu orðnir langþreyttir á þessum takmörkunum á umgengni og notkun mannvirkja en við verðum að þrauka og standa saman vörð um skólasamfélagið og ungviðin og gera allt sem í okkar valdi stendur til að þeirra starfsemi verði fyrir sem minnstri röskun.
Virðingarfyllst,
Jón Viðar Matthíasson,
framkvæmdastjóri
almannavarnanefndar

Aðrar fréttir