
Glæsilegur sigur hjá stelpunum!

– 
30 – 32
(9 – 17)
Stelpurnar okkar heimsóttu Valsstúlkur í Vodafone höllina að Hlíðarenda í gær. Fyrir leikinn var Valur í 3. sæti N1 deildarinnar en FH í 4.-6. Fyrirfram var því búist við sigri Valsstúlkna en annað kom á daginn.
FH stelpur byrjuðu leikinn af miklum krafti, voru fastar fyrir í vörninni og með skynsömum sóknarleik náðu þær strax öruggri forystu. Valsstelpur virtust ekki mættar til leiks og gerðu fjölmörg mistök sem okkar stelpur nýttu til að auka forystuna. Hálfleikstölur 9-17, FH í vil.
Í síðari hálfleik hélst munurinn sá sami, yfirleitt sex til átta mörk. Á síðustu mínútum leiksins náði Valur nokkrum hraðaupphlaupum og því endaði leikurinn með einungis tveggja marka sigri FH, 30-32. Öruggur sigur engu að síður og virkilega góð tvö stig í höfn.
Ragnhildur Rósa var óstöðvandi í leiknum, skoraði 17/6 mörk í öllum regnbogans litum. Stelpurnar spiluðu fasta og góða vörn og Helga Vala var traust fyrir aftan.
Eftir leiki dagsins situr liðið eitt í 4. sæti N1 deildarinnar og náðu stelpurnar þar með sínu fyrsta markmiði, að vera í 1.-4. sæti um jólin. Undir eðlilegum kringumstæðum gæfi það FH sæti í Deildarbikarnum sem fer fram milli jóla og nýárs en þar sem Stjarnan gat ekki leikið í desember vegna þátttöku Florentinu Stanciu á Evrópumóti landsliða þá fengu þau lið þátttökurétt sem voru í 1.-4. sæti þann 1. desember. Glæsilegur árangur hjá stelpunum engu að síður og þær geta farið sáttar í jólafrí!
Markaskorun FH:
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 17/6
Hildur Þorgeirsdóttir 4
Ásdís Sigurðardóttir 2
Ebba Særún Brynjarsdóttir 2
Guðrún Helga Tryggvadóttir 2
Gunnur Sveinsdóttir 2
Hafdís Inga Hinriksdóttir 1
Ingibjörg Pálmadóttir 1
Líney Rut Guðmundsdóttir 1
Helga Vala Jónsdóttir varði 17 skot í markinu
ÁFRAM FH!!
