Gleðin og ánægjan mun geisla af okkur á vellinum
FH stúlkur hefja leik í N1 deild kvenna á morgun, laugardag. Leikið verður við Gróttu kl 16 úti á nesi. Stelpurnar eru búnar að æfa eins og berserkir í allt sumar og er gífurleg tilhlökkun í þeirra hópi. Af þessu tilefni tók Hilmir Heiðar Lundevik sérlegur blaðamaður kynningarmálaráðs handknattleiksdeildar, Hafdísi Hinriksdóttur tali á léttu nótunum fyrir þennan mikilvæga leik.
Sæl Hafdís, hvernig er svo að vera komin aftur í Krikann og maka á sig harpixinu?
Það er bara alveg frábært, virkilega gaman að vera komin aftur á heimaslóðir, Kaplakriki er alltaf sá staður sem mér þykir vænst um af þessum íþróttahúsum og hér á ég svo sannarlega heima.
Hvernig hafa æfingar liðsins gengið í sumar og haust?
Æfingarnar hafa gengið mjög vel, við erum búnar að vera duglegar að æfa og höfum lagt mikið á okkur. Ég var undir handleiðslu Silju Úlfarsdóttur í sumar og það var alveg frábært, hrikalega klár þjálfari hún Silja og kann ég henni bestu þakkir
Aðrar fréttir
Komdu á póstlistann!
Skráðu þig á póstlistann okkar, þannig að þú missir ekki af viðburðum, tilboðum og skemmtilegum póstum.
"*" indicates required fields