Góð staða hjá 6. flokki karla
Fyrsta mótið sem telur til stiga á Íslandsmótinu í 6. flokki karla og
kvenna fór fram um helgina á Akureyri. A-lið FH sigraði alla sína
leiki hampaði því Hagkaups bikarnum og verma efsta sætið í 1. deild
Íslandsmótsins í 6. flokki karla (eldra ár). Með í för var einnig
B-lið sem sýndi það og sannaði að hjá FH vantar ekki breidd því liðið
spilaði í 2. deild og keppti þar eingöngu við A lið annara félaga.
B-liðið tapaði einungis einum leik og hafnaði í 3-4 sæti í 2. deild (2.
sæti í sínum riðli) og var því aðeins hársbreidd frá því að keppa í 1.
deild á næsta móti sem fram fer í Kaplakrika í lok janúar 2010.
Stelpurnar mættu einnig til leiks og stóðu sig frábærlega vel þrátt
fyrir mikið mótlæti því þær voru færðar upp um deild vegna forfalla og
áttu því á köflum við ofurefli að etja. En uppúr stendur að þetta vara
frábært mót og mikil skemmtun. Áfram FH!