Góður liðsstyrkur að norðan

Góður liðsstyrkur að norðan

Það er nokkuð ljóst að FH verður ekki á flæðiskeri statt með markverði á næsta tímabili í handboltanum því fjórði markvörðurinn er að bætast við leikmannahóp FHinga í karlaflokki.

Arnar Sveinbjörnsson er gengin til liðs við FH. Arnar er markvörður sem leikið hefur alla sína tíð með KA og nú síðast með Akureyri. Arnar er fæddur 1988 og lék nokkra leiki með liði Akureyrar síðasta tímabili. Arnar hefur verið viðloðandi 20 ára landslið Íslands síðustu ár. Hann er hér með boðinn innilega velkominn í FH.
Eins fólk eflaust veit, kom Magnús Sigmundsson aftur heim frá Haukum í sumar en fyrir eru ekki markmenn af verri endanum, þeir Hilmar Þór Guðmundsson og Daníel Andrésson


Arnar Sveinbjörnsson

styður

Aðrar fréttir