Handboltagisk – 6.umferð kvenna – úrslit

Handboltagisk – 6.umferð kvenna – úrslit

Sigurborg Eyjólfsdóttir



6.umferð í N1-deild kvenna




Sigurborg Eyjólfsdóttir er giskari vikunnar í N1-deild kvenna að þessu
sinni. Hún lék sem hornamaður á sínum tíma í hinu goðsagnakennda
“Golden girls” liði okkar FH-inga, en starfar í dag hjá fyrirtækinu
Vistor.


Spá Sigurborgar og úrslit fyrir 6.umferð N1-deildar kvenna er eftirfarandi:

Lau. 1.nóv.2008  13.00   Ásvellir      Haukar – Fram   gisk 1úrslit 1

Lau. 1.nóv.2008  13.00   Seltj.nes     Grótta – Valur   gisk 2úrslit 2

Lau. 1.nóv.2008  13.00   Digranes     HK – Fylkir   gisk 1úrslit 1

Lau. 1.nóv.2008  13.00   Mýrin     Stjarnan – FH   gisk 2úrslit 1

Gott gisk þarna á ferðinni frá Sigurborgu, aðeins hársbreidd frá fullu húsi. Hún kemur því sterk inn í 2. sætið, ásamt Möggu T., með 6 stig en það er sem fyrr Kristín Pétursdóttir sem leiðir keppnina með 8 stig.

Sigurborg kýs að skora á fyrrum liðsfélaga sinn úr “Golden girls”,
Hildi Harðardóttur fyrir næstu umferð gisksins, sem hefst á miðvikudaginn með leik Fram og Gróttu.

Staðan í handboltagiskinu

Aðrar fréttir