Handboltaskóli FH
Verður áhersla á tækniæfingar og einstaklingsþjálfun og einnig verður boðið upp á fræðslu og ýmislegt skemmtilegt sem viðkemur handbolta og góðir gestir munu kíkja í heimsókn.
Handboltaskóli FH verður starfræktur í Kaplakrika frá 8-19 ágúst og er frá klukkan 10-12 á morganna, fyrir 10-14 ára (1997-2001) verð á þessu tveggja vikna námskeiði er 10.000 kr.
Skráning á handbolti@fh.is og í kaplakrika 4.ágúst frá kl 16-18 þar sem hægt verður að greiða fyrir námskeiðið einnig verður hægt að greiða fyrir það á mánudagsmorgninum 8. ágúst frá klukkan 9-10
Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnlaugur Viggósson s:697-7892