Herrakvöld FH

Herrakvöld FH

Það styttist í árlegt Herrakvöld FH en það verður haldið föstudaginn 3. apríl. Að vanda er dagskráin afar glæsileg en þetta er veisla sem alvöru FHingar meiga ekki láta sig vanta í.

Veislan verður haldin í gamla Iðnskólanum á Reykjavíkurvegi.
Veislustjórar eru Davið og Stefán.
Ræðumenn kvöldsins eru þeir Bjarni Benediktsson og Árni Páll Árnason, alþingismenn.
Skemmtiatriðin eru rándýr og rétt eins og venjulega frumflytur Hafnarfjarðarmafían nýtt FH lag fyrir sumarið.

Miðaverð er 5000 kr. og þá er hægt að panta hjá Pétri Steph í síma 894 0040 eða Árna Birni í 899 5889 eða á netfangið abo@simnet.is.

Aðrar fréttir