Íþróttaskólinn á laugardag – Heiðmörk
Gönguferð/Ratleikur
Laugardaginn 27. nóvember n.k. er fjölliðamót í handbolta í Kaplakrika. Því er íþróttasalurinn upptekinn allan daginn.
Við tökum stefnuna á Heiðmörk, förum þar í góðan göngutúr/ratleik, þar sem finna þarf meðal annars þekktar persónur frá Disney.
Útitímarnir í Heiðmörk undanfarin ár hafa heppnast mjög vel, sama hvernig hefur viðrað – munum bara eftir að klæða okkur rétt!
Við hittumst á bílastæðinu við Trjásýnilundinn í skóginum kl. 10:00.
Bestu kveðjur, kennarar íþróttaskólans.