Jón Þór þjálfari mfl. kv. í stuttu spjalli um leikinn á morgun og fleira

Jón Þór þjálfari mfl. kv. í stuttu spjalli um leikinn á morgun og fleira

Sæll Jón og til hamingju með að vera komin í undanúrslit í 1. deild kv.  Hvernig hefur sumarið komið þér fyrir sjónir?

Já, þakka þér og sömuleiðis.

Sumarið hefur gengið vel – spilamennskan verið jafnbetri hjá okkur heldur en við reiknuðum með og stelpurnar staðið sig mjög vel. Deildin spilaðist nokkurn veginn eins og við áttum von á og við sátt við að ná í 21 stig og skora fullt af mörkum.

 

Er munur á liðinu frá því í fyrra?

Já, fyrir utan það að þessi ungi hópur er orðinn árinu eldri að þá er kominn meiri hraði og hreyfanleiki í liðið. Einnig gengur okkur orðið betur að halda boltanum innan liðsins þannig að við erum oftar að stjórna leikjunum. Hvert ár í boltanum gefur þessum stelpum mikið og því mikilvægt að þær haldi áfram og bæti sig frá ári til árs.

 

Hver voru markmiðin fyrir sumarið?

Markmið meistaraflokks var að ná í úrslitakeppnina og má því segja að stelpurnar séu komnar skrefinu lengra eftir að hafa lagt Þróttara í 8-liða úrslitum. Þetta er rjóminn ofan á kökuna , úrslitaleikir sem þenja taugarnar og kalla fram nauðsynlegan sigurvilja hjá leikmönnum.

Flestar þessara stelpna spila einnig með 2.flokki – þar er takmarkið að halda okkar í sæti í A-deild og einnig eru þær komnar í undanúrslit bikarkeppninnar.

 

En að leiknum á morgun.  Hvernig er Eyjaliðið?

 Eyjaliðið er gott fótboltalið eins og árangur liðsins í sumar segir til um ; efstar í B- riðli Íslandsmóts og náðu að slá tvö úrvalsdeildarlið úr bikarkeppninni. Þetta eru góðar fótboltastelpur sem eru í góðri þjálfun hjá Jóni Óla; Vel skipulagðar og í góðu formi. Við höfum spilað við þær tvisvar sinnum í sumar og þrátt fyrir að við höfum ekki enn náð að vinna þær þá hlýtur að fara að styttast í það ! Að komast í undarúrslitin er frábær reynsla fyrir okkar stelpur og nú er bara að halda áfram að hafa gaman af þessu og njóta hverrar mínútu.

 

Hvernig sérðu framhaldið fyrir þér í kvennafótboltanum hjá FH ?

Á undanförnum árum hefur verið unnið frábært starf í yngri flokkunum  og síðan má segja að  spilin hafi verið stokkuð upp á nýtt fyrir 3 árum varðandi meistaraflokk og 2. flokk. Það eru margir að vinna frábært starf í kringum stelpurnar; kvennaráð, liðsstjórar,foreldrar og aðrir stuðningsmenn og ef þessi breiðfylking heldur áfram þá er framtíðin björt, en stundum er sagt að það sé auðvelt að vera efnilegur en það kosti mikla vinnu, þolinmæði og þrautseigju að verða góður. Okkur miðar vel áfram en það má ekki slaka á.

Við þökkum Jóni fyrir spjallið og óskum honum og liðinu góðs gengis á morgun.

Áfram FH

Aðrar fréttir