Knattspyrnu- og boltaskóli FH 2015
Knattspyrnu- og Boltaskóli FH 2015
Námskeið hjá yngri hópi (börn fædd 2005-2009):
1. námskeið 11. – 19. júní (6 dagar)
2. námskeið 22. – 26. júní
3. námskeið 29. júní – 3. júlí
4. námskeið 6. – 10. júlí
5. námskeið 13. – 17. júlí
6. námskeið 10. ágúst – 14. ágúst
- Knattspyrnuskólinn stendur yfir frá 8:45-11.00 fyrir 5-10 ára. Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klædd eftir veðri.
- Boðið er upp á morgungæslu frá 8.00-8.45 og svo gæslu/leikir frá 11:00-12:00. Gæslan fer fram í íþróttasalnum í kaplakrika. Frjálst er að sækja krakkana hvenær sem er á milli 11:00-12:00. Gæslan er innifalin í verðinu.
- Áhersla er lögð á að þátttakendur fái verkefni við sitt hæfi. Farið verður í grunnþætti knattspyrnunnar og leikgleði höfð í fyrirrúmi. Dagskráin er brotin upp vikulega, haldið verður heimsmeistaramót hvern föstudag og auk þess að heimsóknir frá þekktu knattspyrnufólki verða á döfinni.
- Verð fyrir hvert námskeið: 5000 kr. (6000 kr. á 1. námskeiði). Ef barn tekur þátt á fimm námskeiðum er það sjötta að kostnaðarlausu.
Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum NORA-kerfið og hefst 15. maí næstkomandi.
Námskeið hjá eldri hópi (börn fædd 2002-2004)
1. námskeið 6. – 10. júlí
2. námskeið 13. – 17. júlí
3. námskeið 17. – 21. ágúst
- Knattspyrnuskólinn stendur yfir frá 13.00-15.00 fyrir 10-13 ára.
- Áhersla er lögð á að bæta tæknilega getu krakkana og verður farið markvisst í alla grunnþætti knattspyrnunnar. Unnið verður í nánu samstarfi við þjálfara 5. og 4.flokka karla og kvenna, svo álagið verði ekki of mikið á krakkana þegar kemur að leikjum og æfingum hjá flokknum.
- Dagskráin verður brotin upp nokkrum sinnum yfir sumarið, farið í ferðir, sett upp í knattþrautir og fótboltagolfmót auk þess að heimsóknir frá þekktu knattspyrnufólki verða á döfinni.
- Verð fyrir hvert námskeið: 5000 kr. Fyrir allt sumarið 10.000 kr.
Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum NORA-kerfið og hefst 15. maí næstkomandi.
Boltaskólinn (börn fædd 2010 og 2011)
1. námskeið 20. júlí – 24. júlí
- Boltaskólinn stendur yfir frá 9.00-12.00. Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klædd eftir veðri.
- Farið verður í ýmsa hreyfi- og boltaleiki og boltar af ýmsum stærðum og gerðum kynntir fyrir krökkunum. Námskeið verður að mestu leiti í íþróttasalnum okk