Komast FH-ingar áfram í Evrópukeppninni?

Komast FH-ingar áfram í Evrópukeppninni?

FH-ingar unnu fyrri leikinn gegn Grevenmacher, á Kaplakrikavelli, með þremur mörkum gegn tveimur eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.  Þeim dugar því jafntefli í seinni leiknum til að komast áfram í keppninni, en sá leikur fer fram á Josy Bartel leikvanginum, sem er þjóðarleikvangurinn í Luxemborg (sjá mynd), og tekur rúmlega 8 þúsund manns í sæti.

Josy Bartel leikvangurinn

Komist FH áfram í 2. umferð forkeppninnar leikur það fyrri leiki sína 14. ágúst og seinni leikina 28. ágúst.

Tekið af ksi.is

Aðrar fréttir