
Leikir framundan í handboltanum
Leikmenn kvenna og karlaliðs FH eru nú í óðaönn að undirbúa sig fyrir
seinni hluta Íslandsmótsins og æfa af krafti þessa dagana eftir
kærkomið jólafrí.
seinni hluta Íslandsmótsins og æfa af krafti þessa dagana eftir
kærkomið jólafrí.
Stelpurnar, sem stimpluðu sig ærlega inn í mótið eftir yfirburðarsigur á Val í síðasta leik fyrir jól, hefja leik á laugardaginn 10. janúar þegar Fram stúlkur koma í heimsókn í Krikann. Þær eiga síðan Stjörnuna heima viku seinna eða 17. janúar. Stúlkurnar skunda svo á Ásvelli þann 24. janúar og heyja aðra orrystu tímabilsins við Haukakonur. Þessir leikir hefjast allir kl 16.
Strákarnir eru í töluvert lengra fríi en svo skemmtilega vill til að þeir eiga nákvæmlega sama prógram og stelpurnar framundan. Þeir taka á móti Frömurum í Kaplakrika þann 22. janúar, eiga svo Stjörnuna heima 29. janúar og þriðju orrystuna við Hauka að Ásvöllum.