Lokahóf hkd FH 2014
Í gær fór fram lokahóf hkd FH. Að sjálfsögðu var lagt upp með það að hafa gaman og tókst það listavel.
Leikmenn voru heiðraðir, þjálfarar voru kvaddir og stjórnarmenn voru kvaddir. Einnig voru MUGGARAverðlaunin veitt ,en þau fá þeir leikmenn sem „kveikja“ í stuðningmönnum
Einari Andra var þakkað fyrir frábært starf hjá FH sl 15 ár og óskað velfarnaðar á nýjum vígstöðvum í Mosfellsbæ. Einnig Var Kristjáni Arasyni og Elvari Erlings þakkað góðs störf hjá FH. Jóna Björg Björgvinsdóttir og Pálmar Sigurðsson hafa hætt í stjórn hkd eftir 3ja ára setu og hafa þau gert kraftaverk í stöðu hkd og mun ný stjórn halda því verki áfram. Hkd FH þakkar Jónu og Pálmari fyrir þeirra störf og þau eru alltaf velkominn aftur ef þau vilja.
Eftirtaldir leikmenn voru heiðraðir.
Fyrir 100 leiki
Benedikt Reynir Kristinsson
Halldór Guðjónsson
Ísak Rafnsson
Ásbjörn Friðriksson
Atli Rúnar Steinþórsson
Fyrir 200 leiki
Daníel Freyr Andrésson
Andri Berg Haraldsson
2 fl kk
Besti leikmaður: Ágúst Elí Björgvinsson
Efnilegast leikmaðurinn: Bergur Elí Rúnarsson
Mfl kvk
Besti leikmaður: Guðrún Ósk Maríusdóttir
Efnilegast leikmaðurinn: Rakel Sigurðardóttir
Mfl kk
Besti leikmaðurinn: Magnús Óli Magnússon
Efnilegasti leikmaðurinn: Ísak Rafnsson
MUGGARAVERÐLAUNIN hlutu
Birna Íris Helgadóttir og Ísak Rafnsson