Nú er mér nóg boðið!
Kapakriki á uppboð?
Við lestur Dagblaðsins á laugardaginn, þá las ég um að KAPLAKRIKI var á Nauðungaruppboði þ.e.a.s. aðeins tilgreint Fimleikafélag Hafnarfjarðar og kröfuhafi er Sýslumaðurinn í Reykjarness.
Nú er nóg komið og ég heimta fund með Aðalstjórn FH og það strax í næstu viku.
Þar sem Aðalstjórnin fræði okkur félaga í Fimleikafélaginu um mál þetta og jafnvel fleiri skyld mál.
1 Hversvegna ekki var staðið í skilum?
2 Hvernig stendur á þessari skuld ?
3 Hver á þessa skuld Aðalstjórn eða einhver deild innan félagsins?
4 Og ef þetta er einhver deild innan félagsins þá á hún að standa skila á þessari skuld ella missa keppnisrétt sinn . Eins og t.d. kom nær fyrir Handknattsleiksdeild Fjölnir
Hafnarfirði 9 september 2001
Magnús Haraldsson