Öruggur sigur á Stjörnunni
FH vann í dag góðan sigur á nýliðum Stjörnunni 5 – 1. Stjarnan sat á toppi deildarinnar fyrir leikinn.
FH var frískari aðilinn og greinilegt að þeir ætluðu sér ekkert nema 3 stig úr þessari viðureign. Með sigrinum er FH í 2. sæti deildarinnar ásamt Keflavík og Stjörnunni.
Mörk FH skoruðu þeir Atli Viðar, Ásgeir Gunnar, Davíð Þór og Alex Söderlund setti svo 2 eftir að hafa komið inná sem varamaður.
Næsti leikur er á fimmtudaginn gegn KR í Frostaskjóli.