
Sálfræðistríðið er hafið
Sálfræðistríðið sem hófst fyrir fyrstu viðureign FH og Fram nær hámarki á
morgun þegar FH og Fram mæstast í Oddaleik liðanna. Þetta hófst allt á
því að Hjálmar Vilhjálmsson (stjórnarmaður hjá Fram) lýsti þeirri skoðun
sinni í tölvupósti til handknattleiksdeildar FH fyrir fyrsta leikinn að það væri synd og skömm að FH-ingar fengu
bara einn heimaleik í úrslitakeppninni.
Við FH-ingar svöruðum þessu með sannfærandi sigri á Fram. Við FH-ingar bætum í og drögum aftur fram báðar stúkurnar og skorum á Framara að fylla gestastúkuna og njóta þess að horfa á síðasta leik Fram þetta tímabilið.