Síðasta námskeiðið í Knattspyrnuskóla FH er í næstu viku
Lokanámskeiðið í Knattspyrnuskólanum í sumar fer fram í næstu viku, dagana 12. – 16. ágúst. Þátttakan hefur verið frábær í sumar, stemningin mikil og ekki staðið á framförum hjá krökkunum.
Skráning fer fram í gegnum svokallað NORA-kerfi en einnig er hægt að mæta á svæðið og greiða fyrir námskeiðið.
Hér má sjá frekari upplýsingar um námskeiðin:
Loks minnum við á facebook-síðu Knattspyrnuskólans þar sem finna má aragrúa af myndum frá námskeiðunum. Sjá hér.
Sjáumst sem flest í næstu viku!