Sigríður heim í FH

Sigríður heim í FH

Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir markmaðurinn öflugi hefur skrifað undir samning við FH um að leika með liðinu næsta tímabil. Sigríður kemur frá Íslandsmeisturum Vals en þar hefur hún leikið undanfarin ár.

” Það er ánægjulegt að fá Sigríði aftur í FH, hér á hún heima, hún smellpassar inní okkar hóp, góður leikmaður og frábær karakter. Það er metnaður hjá okkur FH-ingum að gera vel í Olísdeild kvenna næsta vetur. Að fá Sigríði til liðs við okkur er stórt skref í þá átt. Við erum með ungt og efnilegt lið. Stelpurnar eru á fullu að æfa og er gaman að fylgjast með þeim þessar vikurnar, þvílíkt einbeittar og áhugasamar fyrir komandi tímabili ”  segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Sigríði Arnfjörð Ólafsdóttur og Ásgeir Jónsson eftir undirskrift.

Aðrar fréttir