Sigur á Selfoss og Haukum
Meistaraflokkur kvenna í fótboltanum hefur ekki setið auðum höndum undir dyggri stjórn Jóns Þórs og Örnu Steinssen en tvíeykið gekk á dögunum frá 3ja ára samning um þjálfun liðsins.
Fyrir rúmri viku síðan mættu stelpurnar Selfoss í æfingaleik í Kórnum og lauk leiknum með sigri FH 5-4. Markaskorarar FH voru grundfirðingurinn Jóhanna Steinþóra með 2, Hafdís 1, og reynsluboltarnir Guðrún Sveins og Silja Þórðar með sitthvort markið.
Í Gær mættu þær svo Haukum einnig í Kórnum. Haukar hafa verið duglegir að sanka að sér leikmönnum undir stjórn Heimis Porca sem nýverið tók við liðinu í annað sinn. Greinilega hugur er í Haukmönnum og verður athyglisvert að fylgjast með þeim á komandi leiktíð. FH liðið er nánast óbreytt frá síðasta tímabili og að stærstum hluta byggt upp á ungum efnilegum stelpum staðið hafa sig vel með yngriflokkum í bland við reynslubolta sem lengi hafa verið að í FH.
Lekurinn gegn Haukum lauk með 1-0 sigri FH í baráttu leik og enn og aftur var það Lögfræðingurinn í félagsmálaráðuneytinu Guðrún Sveinsdóttir sem skoraði fyrir FH. Samkvæmt heimildum spiluðu allir leikmenn FH í leiknum líkt og í leiknum gegn Selfoss. Jón Þjálfari var nokkuð sáttur við frammistöðu leikmann að leik loknum og hafð á orði að það væri “karakter´” í liðinu.
Stelpurnar munu ekki leika fleiri leiki fyrir áramót en heyrst hefur að þær hyggist gera sér glaðan dag á fimmtudaginn í árlegum jólfögnuði. Góða skemmtun stelpur