
Staða handboltagisksins eftir hálfnað mót
hálfnað og búin að vera góð pása í handboltanum er ekki úr vegi að fara yfir
stöðuna í handboltagiskinu víðfræga hér á fh.is.
Í vetur hafa
kunnar handboltakempur af báðum kynjum spreytt sig á að tippa á úrslit
handboltans í bæði karla og kvennadeildunum. Giskurum hefur gengið misvel en
frábær gisk litið dagsins ljós inn á milli.
Karlarnir hafa í
vetur giskað á leiki í báðum deildum, samtals 8 leikir í hvert skipti. Þeir
hafa því getað fengið mest 16 stig.
Enginn hefur náð
fullu húsi stiga enn sem komið er en hnífjafnir á toppnum eru eftirfarandi:
1-3 sæti Ingvar
Viktorsson 14 stig
Valdimar Grímsson 14 stig
Sigurður Sveinsson 14 stig
Hjá konunum er
þetta aðeins öðruvísi. Giskað hefur verið á aðeins eina deild og því giskað á 4
leiki í senn sem gefa mest 8 stig. Aðeins ein kona hefur haft alla leiki rétta
í vetur enn sem komið er:
1. sæti Kristín Pétursdóttir 8 stig
2-5. sæti Margrét
Theodórsdóttir 6 stig
Sigurborg Eyjólfsdóttir 6 stig
Aðrar fréttir
Komdu á póstlistann!
Skráðu þig á póstlistann okkar, þannig að þú missir ekki af viðburðum, tilboðum og skemmtilegum póstum.