Stórleikur á sunnudaginn
Áhugavert efni frá FH
Áhugaverðar upplýsingar
Líklegt byrjunarlið |
Daði Lárusson Guðmundur Sævarsson Ármann Smári Björnsson Tommy Nielsen Freyr Bjarnason Ásgeir Gunnar Ásgeirsson Sigurvin Ólafsson – Davíð Þór Viðarsson Ólafur Páll Snorrason Allan Dyring Tryggvi Guðmundsson |
Meiddir leikmenn (hver eru meiðslin og hvað gætu þeir verið lengi frá?) |
Auðun Helgason er með slitin krossbönd og leikur ekki á þessu keppnistímabili Sverrir Garðarson á við ökklameiðsli að stríða |
Sögulegar viðureignir |
Rimma FH-inga og Valsmanna á Laugardalsvellinum í úrslitum bikarkeppninnar 1991 var söguleg. Jafnt reyndist eftir framlengingu 1-1, þar sem Hörður Magnússon skoraði mark FH-inga og Gunnar Már Másson fyrir Valsmenn. Því þurfti tvo leiki til að knýja fram úrslit og í þeim síðari reyndust Valsmenn sterkari og sigruðu 1-0 með marki Ágústs Gylfasonar. Viðureignir liðanna í Landsbankadeildinni í fyrra voru einnig æsilegar. Í 6. umferð mótsins sigruðu FH-ingar 1-0 í toppslag á Hlíðarenda með marki Allans Borgvardts og FH-ingar tryggðu sér svo Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Val í seinni umferð í Kaplakrika, 2-0. Á dögunum lögðu Valsmenn FH-inga 1-0 í Kaplakrika og sigruðu þar með í Meistarakeppni KSÍ. Mark Valsmanna í leiknum gerði Matthías Guðmundsson. |