Ungl fl karla Íslandsmeistarar 2007
FH komst í 5-0 og Haukar skoruðu sitt fyrsta mark á 15 mín. 5-1, 7-2, 8-5 12-6 voru tölur sem sáust í leiknum. allir strákarnir áttu stórleik og bættu endalaust í og höfðu rosalega gaman af þessum leik, og brostu allan tímann. Lokatölur urðu 29-15, stórsigur í höfn. Og íslandsmeistarar í 6 skipti í röð. Glæsi legur árangur hjá þessum strákum. Hafa Elvar og Steini nú stýrt strákunum 35 leiki í vetur og ekki tapað stigi, 35 sigrar í röð.´Deildar- SS-bikar- íslands og Norden Cup meistarar, 4 titlar af 4 mögulegum. Alveg frábært.
Mikill fjöldi fólks mættu á leikinn og var mikil stemming á pöllunum.
á næstu dögum mun koma samantekt frá báðum liðum unglingaflokks
TIL HAMINGJU STRÁKAR OG ÞJÁLFARAR !!!!