Úr okkar höndum.

Úr okkar höndum.

FH fór í heimsókn í Laugardalinn í gær þar sem banhungraðir Framarar
burstuðu annars slakt Fimleikafélag. Þar með má segja að möguleikar
okkar á Íslandsmeistaratitlinum séu runnir út í sandinn.

Í hálfleik var staðan 1 – 0 fyrir Fram og nokkur jafnræði með liðunum. Þegar leikur var svo flautaður á eftir hálfleik, var eins og heilladísirnar hafi flækt reimar leikmanna Fimleikafélagsins því fátt gekk upp. Þegar flautað var til leiksloka var staðan svo 4 – 1.

En nú þarf að klára mótið með stæl og fjölmenna í Krikann á sunnudag, en þá eru það Keflavík.

Aðrar fréttir