Úrslitaleikir framundan

Úrslitaleikir framundan

Úrslitaleikir í yngri flokkum knattspyrnunnar standa yfir þessar vikurnar og er tilvalið að vekja athygli á nokkrum FH-liðum sem verða í eldlínunni næstu daga.

Á morgun, föstudag, leikur 4. flokkur karla til úrslita á Íslandsmótinu gegn liði Stjörnunnar og fer leikurinn fram í Kaplakrika kl. 17.00.

Á laugardag fer fram úrslitaleikur í bikarkeppninni hjá 2. flokki kvenna gegn Breiðabliki og fer leikurinn fram í Kaplakrika kl. 12.00.

Á laugardag leikur einnig B-lið 3. flokks karla til úrslita á Íslandsmótinu gegn Keflvíkingum og fer leikurinn fram á Iðavöllum í Keflavík kl. 12.00.

FH.is óskar þessum flottu FH-liðum góðs gengis í baráttunni og hvetur FH-inga til að kíkja á völlinn.

Aðrar fréttir