Úrslitaleikur 1. deildar kvenna á sunnudaginn

Úrslitaleikur 1. deildar kvenna á sunnudaginn

Eins og FH-ingum ætti að vera kunnugt tryggðu stelpurnar í mfl. kvenna sér sæti í efstu deild að ári eftir jafntefli í eyjum miðvikudaginn síðastliðin.  Nú er komið að úrslitaleik 1. deildar gegn erkióvininum í Haukum.  Frábær árangur hjá Hafnarfjarðarliðunum og ljóst að það er uppgangur í kvennaboltanum í Firðinum.

Leikjum liðanna í sumar lauk báðum með 1-0 sigri Hauka og nú er komin tími á FH. 

Við skorum á alla FH-inga að mæta á Ásvelli á sunnudaginn og styðja stelpurnar til sigurs í deildinni.

Áfram FH

Aðrar fréttir