Víðavangshlaup Hafnarfjarðar

Víðavangshlaup Hafnarfjarðar

Víðavangshlaup Hafnarfjarðar

Sumardaginn fyrsta, 21. apríl n.k. fer fram Víðavangshlaup Hafnarfjarðar. Hlaupið hefst á Víðistaðatúni kl. 13.00 og verður hlaupið um Víðistaðasvæðið. Allir keppendur fá
verðlaunapeninga. Sigurvegarar í flokkum fá bikara.
Verðlaun eru gefin af Hafnarfjarðarbæ.

Ath. ekkert þátttökugjald og skráning á staðnum.

Keppt er í eftirtöldum flokkum:

Aldur Vegalengd
5 ára og yngri strákar og stelpur (2000 og síðar) ca 200 m.
6 – 7 ára strákar og stelpur (1998-1999) ca. 300 m.
8 – 9 ára strákar og stelpur (1996-1997) ca. 400 m.
10 – 12 ára strákar og stelpur (1993-1995) ca 600 m.
13 – 14 ára piltar og telpur (1991-1992) ca 1000 m.
15 – 20 ára drengir og stúlkur (1985-1990) ca 2000 m.
21 ára og eldri karlar og konur (1984 og fyrr) ca 2000 m.

Keppendur 15 ára og eldri hlaupa fyrst.
Þá hefst keppnin hjá þeim yngstu og upp úr.

Undanfari verður með yngstu keppendunum.

Frjálsíþróttadeild FH sér um framkvæmd hlaupsins.
Nánari upplýsingar um hlaupið veitir:

Sigurður sími: 5651114 og 6645631.

Aðrar fréttir