Víðavangshlaup Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni

Sumardaginn fyrsta, 20.apríl n.k. fer fram Víðavangshlaup Hafnarfjarðar.

Hlaupið hefst á Víðistaðatúni kl. 11:00 og verður hlaupið um Víðistaðasvæðið. Allir keppendur frá verðlaunapeninga. Sigurvegarar í flokkum fá bikara. Verðlaun eru gefin af Hafnarfjarðarbæ. Boðið verður upp á grillaðar pylsur á nýja grillinu á Víðistaðatúninu frá kl. 12:00

ATH! Ekkert þátttökugjald og skráning á staðnum.

Keppt er í eftirtöldum flokkum:

Aldur                                                                                            Vegalengd

15 ára og eldri (fædd 2002 og fyrr)                                       ca 2000 m.

6 ára og yngri strákar og stelpur (2011 og síðar)               ca 200 m.

7 – 8 ára strákar og stelpur (2009-2010)                             ca. 300 m.

9 – 10 ára strákar og stelpur (2007-2008)                          ca. 400 m.

11 – 12 ára strákar og stelpur (2005-2006)                         ca 600 m.

13 – 14 ára piltar og telpur (2003-2004)                             ca 1000 m.

Keppendur 15 ára og eldri hlaupa fyrst. Þá hefst keppnin hjá þeim yngstu og upp úr.

Undanfari verður með yngstu keppendunum.

Frjálsíþróttadeild FH sér um framkvæmd hlaupsins fyrir Hafnarfjarðarbæ.

Nánari upplýsingar um hlaupið veitir:

Sigurður sími: 6645631.

Aðrar fréttir