Yfirlýsing frá kvennaráði FH

Yfirlýsing frá kvennaráði FH

Í framhaldi af  leik Vals og FH sem fram átti að  í dag vill kvennaráð FH að senda frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu.

Sl. haust ákváðu nær allir leikmenn sem spiluðu fyrir FH á síðasta keppnistímabili að hætta knattsspyrnuiðkun, en þrjár fóru  yfir í önnur lið.   Ástæða þessa voru ýmiss uppsöfnuð vandamál frá fyrri árum.

Þrátt fyrir þetta áfall var ákveðið að gefast ekki upp og leggja niður meistaraflokk, heldur stofnað var nýtt kvennaráð,  reynt að fá til okkar leikmenn til að styrkja þann hóp sem við höfðum af leikmönnum í öðrum og þriðja flokki auk ,eins leikmanns á fyrsta ári í meistaraflokki,  fyrirliðinn Hrönn Hallgrímsdóttir, sem hefur staðið sig óaðfinnanlega við að berja stelpurnar áfram, .  Eins var mikið reynt að fá þær stelpur sem lögðu skóna á hilluna að halda áfram án árangurs.

Ráðin var góður þjálfari sem hefur gefið sig 100% í verkefnið.   Fengnir voru 3 leikmenn frá Serbíu.  Einn af þessum leikmönnum varð að fara til baka í Júni þar sem hún fékk ekki framlengingu á atvinnuleyfi – en hún hafði komið sem leikmaður til Hauka 2004 og hafði verið búsett hér í tæp tvö ár,  þegar henni var vísað úr landi.  Þetta veikti liðið umtalsvert – þar sem um sterkan varnarmann var að ræða sem ekki hefur verið vanþörf á í sumar.

Þrátt fyrir loforð forsvarsmanna annara félaga  um leigu á leikmönnum til okkar  frá öðrum liðum, sem treyst var á, var ekki staðið við þau loforð sem endanlega var ljóst nokkrum dögum fyrir mót,  og hófum við því leik í vor með aðeins 4 leikmenn á meistaraflokksaldri – aðrar voru úr 2 og 3 flokki.

Eins og búist var við var þetta verkefni stelpum úr 2 og 3 flokki ofviða – þær urðu að spila alla leiki í sínum flokkum auka erfiðra meistraflokks leikja, stundum 2 – 3 leikir á viku.   Þetta er stórt afrek hjá þessum stelpum og eiga þær skilið mikið hrós fyrir baráttu og dugnað sem þær hafa sýnt í sumar. .

Fækkað hefur í hópnum um 1 – 2 leikmenn í viku vegna meiðsla. Í dag var staðan orðin sú að  í liðinu voru aðeins 7 leikmenn leikhæfir til að spila þennan leik – aðrar voru meiddar, sumar treystu sér til að spila 10 – 15 mín en ekki heilan leik.    Því miður var þetta ekki endanlega ljóst fyrr en stelpurnar mættu á hefðubundnum tíma fyrir leik.  

Um leið og við óskum Val til hamingu með Íslandsmeistaratitilinn viljum við biðjast afsökunar á því að hafa ekki geta mætt með fullskipað lið  til leiks í dag.   Allt var reynt til að fá leikmenn í þennan leik en því miður áttum við ekki fleiri leikhæfa  leikmenn í dag vegna álags sem  hefur verið á þeim í allt sumar.

Fh. Kvennaráðs FH
Kolfinna Matthíasdóttir form.
Sími 898-2626

Aðrar fréttir