Æfingaleikir hjá 3. flokki
FH – Afturelding A2 kl. 16:30. 4-3 (2-1) Gummi, Gulli Jón, Siggi og Hemmi.
A-2 og B-liðið léku gegn Aftureldingu á snævi þöktum gervigrasvellinm í Kaplakrika. Nokkur forföll voru í A-2 liðinu; Orri, Bjarni, Simmi, Nebo og Steini voru allir meiddir en byrjunarliðið var eftirfarandi:
Siggi Kuszczak
Pálmi Nonni (f) Maggi Kez Óli
Ingi Hermann Matti Gummi
Gulli Jón Smári
A2-liðið vann Aftureldingu 4-3. Gummi kom okkur yfir en Afturelding jafnaði á 38. mínútu. En drengur að nafni Gulli Jón, sem spilaði með lambhúshettu, laumaðist inn fyrir vörn Aftureldingu eins og þjófur í 10-11 og náði forystunni aftur fyrir FH á síðustu andartökum hálfleiksins. Pálmi Sigurjónsson sem var að gera stormandi lukku í hægri bakverðinum varð að fara meiddur af leikvelli í fyrri hálfleik, hinn geðþekki Gussi Vass – eitt sinn kenndur við Lehmann – fór í markið en Sigurður Ingiberg fór í senterinn, nánar tiltekið í holuna góðu.
Snemma í seinni hálfleik kom Siggi FH í 3-1 eftir hornspyrnu. Þá má segja að nokkuð kæruleysi hafi gripið um sig og Afturelding komst inn í leikinn með tveimur mörkum og staðan orðin 3-3. Hart var barist síðustu mínúturnar en það var þó tónfræðineminn Hermann Ágústsson sem lék stöðu hægri bakvarðar síðari hluta seinni hálfleiks sem flengdi boltanum efst í markhornið af löngu færi þremur mínútum fyrir leikslok og tryggði FH sætan 4-3 sigur.
FH – Afturelding B-lið, kl. 18:00. 1-1 (1-0). Barthoz Komorowski.
Mun fleiri voru í B-liðinu eða um 19 leikmenn og tóku allflestir hálfleik. Hrannar lék þó allan leikinn og Barthosz og Birkir léku einnig meira en hálfleik en allir þrír hafa æft mjög vel í haust.
Byrjunarliðið í fyrri hálfleik:
Guðjón
Birkir Björgvin Hrannar Elli
Rafá Arnar Magnús Benni
Bartosz (f) Bjarki
FH-ingar byrjuðu leikinn vel og sóttu mun meira. Liðið pressaði hvern einasta bolta eins og og hungraðir úlfar á sléttum Síberíu, í barrskógabeltinu nyrðra nánar tiltekið. Eftir um 25 mínútuna leik náði fyrirliðinn Barhosz Komorowski forystunni fyrir FH. Ásgrímur Gunnarsson, sem komið hafði inn á fyrir Rafá sem varð fyrir hnjaski, skautaði framhjá varnarmönnum Mosfellinga og sendi hnitmiðaða sendingu inn í teiginn þar sem Bartosz beið eins og hrægammur og renndi boltanum í netið.
1-0 í hálfleik og í seinni hálfleik lék nánast nýtt lið:
&