Björn Daníel kominn heim í Kaplakrika!
Björn Daníel Sverrisson er genginn í raðir FH á nýjan leik og skrifaði undir fjögurra ára samning við FH.
Björn Daníel, sem er 28 ára gamall, er uppalinn í FH. Hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með liðinu árið 2008 og lék sex leiktíðir með því áður en hann hélt út í atvinnumennsku. Hann vann þrjá Íslandsmeistaratitla með FH-ingum og var valinn leikmaður ársins af leikmönnum árið 2013. Björn hefur spilað 108 leiki með FH í efstu deild og hefur skorað í þeim 32 mörk og þá á hann að baki 8 A-landsleiki.
Björn Daníel yfirgaf FH eftir tímabilið 2013 og samdi við norska liðið Viking. Hann var í herbúðum Viking frá 2014-16 en fór þaðan til danska liðsins AGF. Í fyrra var hann í láni hjá danska B-deildarliðinu Vejle en sneri aftur til AGF á þessari leiktíð.
Við bjóðum Bjössa velkominn heim í Kaplakrika!