Breiðablik – FH á sunnudag kl 16:30
Mótherji: Breiðablik Hvar: Kópavogsvöllur Hvenær: Sunnudaginn 20.sept klukkan 16:30
Það verður toppslagur í Pepsi-deildinni á sunnudaginn þegar við FH-ingar förum í heimsókn á Kópavogsvöll og mætum þar Breiðablik. FH er á toppnum með 45 stig og Breiðablik í öðru sæti með 37 stig.
Stuðningurinn hefur verið frábær í sumar og vonandi verður áframhald á honum því strákarnir þurfa svo sannarlega á stuðningnum að halda á sunnudaginn.
Forsala á leikinn er á Ölhúsinu Reykjarvíkurvegi fram að leik.
Allir á völlinn og áfram FH!
FH – Radio
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á sunnudaginn þegar FH mætir Breiðablik. Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net