FH – KR á sunnudag kl 20:00
Mótherji: KR Hvar: Kaplakrikavöllur Hvenær: Sunnudaginn 19.júlí klukkan 20:00
Það verður toppslagur í Pepsi-deildinni á sunnudaginn þegar við FH-ingar fáum KR í heimsókn í Kaplakrika. FH á toppnum með 24 stig og KR í öðru sæti með 23 stig. Stuðningurinn hefur verið mjög góður í síðustu leikjum og vonandi verður áframhald á honum því strákarnir þurfa svo sannarlega á stuðningnum að halda. Allir á völlinn og áfram FH!
FH – Radio
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á sunnudag þegar FH mætir KR.
Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net
Pyngjan
Í lokinn viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sleppt við það að standa í miðasölu röð á leikdag. Pyngjan er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina. Nú er hægt að nota Pyngjuna sem er app til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur.