Final 4 bíður okkar manna | Áfram í bikarnum eftir annan sigur í Safamýri!
Undanúrslit í bikar eru framundan hjá liði FH eftir að liðið lagði Fram að velli í Safamýri í kvöld, 28-32, í baráttuleik. Um var að ræða þriðja leik FH-liðsins á árinu, og jafnframt þriðja sigur þess.
Ljóst var frá því snemma að leiknum að Framarar ætluðu sér ekki að láta FH-liðið leggja sig jafn auðveldlega og viku áður, þegar okkar menn sóttu 10 marka sigur í greipar Framara í deildinni. Strákarnir okkar höfðu yfirhöndina fyrsta korterið í leiknum, en þegar Framarar komust marki yfir um það leyti þá var eins og þungri byrði hefði verið létt af Safamýrarpiltum – þeir höfðu jú aldrei haft forskotið í leik liðanna fyrir viku, og þessi kærkomna forysta varð þess valdandi að þeir virtust öðlast meiri trú á verkefnið.
Liðin skiptust á að vera með forystuna fram að hálfleik, en það voru á endanum Framarar sem leiddu með þriggja marka mun þegar liðin gengu til búningsherbergja. Ágeng vörn þeirra hafði gengið hraustlega út gegn okkar liði og slegið taktinn úr sóknarleik þess, og á meðan virtust Framarar sjálfir finna lausnir á vörn FH-liðsins í meira mæli en Halldóri Jóhanni hefur líkað. Framarar fengu einnig sinn skerf af hraðaupphlaupum fyrir tilstilli varnar sinnar, og eins og við FH-ingar höfum séð oft í vetur okkar megin þá eru þau mörk afar dýrmæt.
Heimamenn hófu síðari hálfleikinn með stæl, en sirkusmark Elíasar Bóassonar – sem var afar keimlíkt þeim fjölmörgu sirkusmörkum sem FH hefur skorað í vetur – kom heimamönnum fjórum mörkum yfir, og útlitið orðið ansi gott hjá þeim. FH-ingar létu það þó ekki slá sig út af laginu, heldur héldu þeir ró sinni og trúðu áfram á að með öguðum sóknarleik og bætingu í vörninni myndi meðvindurinn snúast, okkur í hag.
Sú varð líka raunin. Vörn FH fór að ná fleiri stoppum heldur en framan af leik, og fyrir vikið tók Ágúst Elí sína bolta þar á bak við. Á 41. mínútu var staðan orðin jöfn að nýju, 19-19, og eftir það var eiginlega varla spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi. Strákarnir hafa verið í toppformi upp á síðkastið, og þegar þessi erfiðasti kafli leiksins var yfirstaðinn þá var leiðin í Höllina orðin bæði styttri og greiðari. Dyggilega studdir áfram af fjölmörgum FH-ingum, sem mættu og létu vel í sér heyra í Safamýri í kvöld, hófu strákarnir okkar að byggja upp forystu sem þeir síðan létu aldrei af hendi. Lokatölur í Framhúsinu 28-32, FH í vil, og sæti í Final 4 því gulltryggt!
Einar Rafn Eiðsson, Óðinn Þór Ríkharðsson og Arnar Freyr Ársælsson áttu allir mjög flottan leik á sínum gamla heimavelli, en þeir voru markahæstir í liði FH með 6 mörk hver. Jóhann Birgir Ingvarsson kom næstur þeim í markaskori með 5 mörk, en hann var áræðinn í leiknum og þurftu Framarar oft að brjóta ansi illa af sér til að ná á honum einhverju taki.
Líkt og áður kom fram hafa FH-ingar tryggt sér sæti í undanúrslitum Coca-Cola bikarsins með sigri kvöldsins, og því ber að fagna. ,,Final 4″ eru án nokkurs vafa skemmtilegasti staki handboltaviðburður sem fram fer á Íslandi í dag, og þekkjum við FH-ingar það vel eftir að hafa tekið þátt í honum og komist í úrslit í hitteðfyrra. Það er markmið sérhvers leikmanns að standa á þessu stærsta sviði í íslenskum handbolta, dúknum í Laugardalshöll yfir bikarúrslitahelgi, og þangað eru strákarnir okkar komnir. Það er jafnframt draumur sérhvers leikmanns að fá að hampa bikarnum sjálfum, og því eru okkar menn komnir skrefi nær.
Það er því ærið tilefni til að hlakka til föstudagsins 24. febrúar næstkomandi, þegar undanúrslitaleikirnir fara fram. Ég treysti því að þið takið daginn frá, kæru FH-ingar, því stuðningur ykkar er ómetanlegur! Það sýndi sig í kvöld þegar Framarar voru með sitt mesta forskot. FH-ingar voru í miklum meirihluta í stúkunni í kvöld, og þegar að á móti blés þá var stuðningurinn við liðið sem mestur. Traustir í meðbyr, tryggir í meðbyr – líkt og sönnum FH-ingum sæmir.
Tökum næsta skref saman, og hirðum þennan bikar. Það er kominn tími til.
Mörk FH: Einar Rafn Eiðsson 6/2, Óðinn Þór Ríkharðsson 6, Arnar Freyr Ársælsson 6, Jóhann Birgir Ingvarsson 5, Gísli Þorgeir Kristjánsson 3, Jóhann Karl Reynisson 3, Ágúst Birgisson 2, Ásbjörn Friðriksson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 14/1.