Handboltagisk – 6. umferð karla – úrslit
6.umferð í N1 deild karla
Giskari umferðarinnar er Sigurður Gunnarsson, margreyndur handboltakappi sem hefur marga fjöruna sopið í boltanum, bæði sem leikmaður og þjálfari.
N1 deild karla og 1.deild karla
Fim. 23.okt.2008 Ásvellir Haukar – Fram gisk 1 úrslit 2
Fim. 23.okt.2008 Höllin Akureyri Akureyri – Valur gisk 2 úrslit 1
Fim. 23.okt.2008 Digranes HK – Víkingur gisk 1 úrslit 1
Lau. 25.okt.2008 Mýrin Stjarnan – FH gisk 1 úrslit 2
Fös. 24.okt.2008 Seltjarnarnes Grótta – Afturelding gisk 1 úrslit 1
Fös. 24.okt.2008 ÍM Grafarvogi Fjölnir – Selfoss gisk 2 úrslit 2
Sun. 26.okt.2008 Ásvellir Haukar U – ÍBV gisk 1 úrslit 1
Lau. 1.nóv. 2008 Austurberg ÍR – Þróttur gisk 1 úrslit 1
Kristalskúlan hjá Sigurði hefur væntanlega verið rafmagnslaus þegar hann fór yfir N1-deild karla, aðeins 1 leikur réttur þar, en hún hrökk síðan í gang með látum þegar kom að 1.deildinni, fullt hús stiga þar takk fyrir, 5 leikir réttir af 8 í heildina sem gera 10 stig. Fínn árangur þar á ferð.
Sigurður kýs að skora á hinn eina sanna Viggó Sigurðsson, núverandi þjálfara Fram í handknattleik fyrir næstu umferð. Viggó hefur komið víða við á löngum ferli m.a. í Krikanum en hann þjálfaði FH á árunum 1986-1989.