Lokahóf knattspyrnudeildar FH
Lokahóf knattspyrnudeildar FH fór fram í Sjónarhól veislusal okkar FH-inga síðasta laugardagskvöld. Sigurreifir FH-ingar fylltu salinn og var stemningin frábær. Sumarið 2015 reyndist afar gjöfult, meistaraflokkur karla í knattspyrnu varð Íslandsmeistari og meistaraflokkur kvenna náði Pepsi-deildarsæti og því rík ástæða til að gleðjast í lok tímabilsins.
Eins og siður er voru ýmis verðlaun á hófinu en verðlaunahafa má sjá hér að neðan:
Meistaraflokkur karla
Bestur: Davíð Þór Viðarsson
Efnilegastur: Böðvar Böðvarsson
Markahæstur: Steven Lennon
Einnig fékk Atli Viðar Björnsson heiðursverðlaun fyrir þann áfanga að ná í sumar að skora sitt 100 mark fyrir félagið.
Emil Pálsson var valinn leikmaður ársins af leikmönnum liða í Pepsi-deildinni.
2.flokkur karla
Bestur: Eggert Tómasson
Efnilegastur: Viktor Helgi Benediktsson
Markahæstur: Viktor Helgi Benediktsson
Meistaraflokkur kvenna
Best: Margrét Sif Magnúsdóttir
Efnilegust: Guðrún Höskuldsdóttir
Markahæst: Margrét Sif Magnúsdóttir
2.fokkur kvenna
Best: Alda Ólafsdóttir
Efnilegust: Ingibjörg Rún Óladóttir
Markahæst:Alda Ólafsdóttir
FH-ingur ársins var Anton Ingi Leifsson en Anton hefur verið atorkumikill í starfi fyrir félagið undanfarin ár og vel að þessu kominn. Við óskum Antoni innilega til hamingju.