Meistaraflokkur kvk FH fékk nýlega liðsstyrk frá landsliði Nicaragua.
Meistaraflokkur FH fékk nýlega liðsstyrk frá landsliði Nicaragua. Ana Victoria Cate Aguilar sem spilar stöðu framherja.
Ana Cate 22. ára fædd í Kansas (USA) og hefur verið í lansliði kvenna í Nicaragua síðan 2010.
Ana Cate er með bandarískan ríkisborgararétt og lék með háskólaliðinu í Auburn USA, en áður en hún kom til FH var hún í Durham Háskóla í Englandi og lék með því fótboltaliði.
“Ég fagna þessu tækifæri hjá FH til að þroska mig sem fótboltamann og stækka sjóndeildarhringinn með nýju spennandi umhverfi. Ég hef spilað fótbolta í USA og Englandi. Núna er tækifæri til að takast á við nýjar áskoranir með nýju liði, íslensku fótboltaliði en ég mun nýta þessa reynslu til að bæta kvennafótboltann í Nicaragua, sem er næsta skref í mínum fótboltaframa.” Segir Ana Cate.
“Ég hlakka til að fá tækifæri til að sýna hvað í mér býr fyrir FH og er sannfærð um að við sem ein liðsheild í FH munum ná langt í Pepsideildinni og ná okkar markmiðum þar, þetta er nýr kafli í lífu mínu hér á Íslandi sem er ótrúlega spennandi og mikil áskorun”.
Þórður Jensson, þjálfari meistaraflokks kvenna FH: Ana er frábær viðbót við okkar lið. Hún er með mikla boltafærni, eldsnögg og kemur sterk inn í sóknarleik FH í Pepsideildinni í sumar. Við höfum miklar væntingar til hennar.
FH er sem stendur efst í Pepsideildinni eftir sigur gegn Aftureldingu þann 13. maí og ÍA 20. maí. Næsti leikur er útileikur gegn Breiðablik, þriðjudaginn 27. maí kl. 19:15 og næsti heimaleikur er þriðjudaginn 3. júní kl. 19:15 gegn Stjörnunni. Munið frítt á alla heimaleiki mfl.kvenna í sumar.