Mfl. kv. laut í lægra haldi
Annan í Hvítasunnu fór fram leikur grannliðanna Hauka og FH á Ásvöllum. Leikurinn var annar leikur FH en fyrir hafði liðið sigrað Draupnir í Krikanum.
Leikir liðanna hafa jafnan verið spennandi og lítið borið á milli. FH spilaði á köflum ágætlega en náði ekki að skapa sér hættuleg færi. Haukar voru hinsvegar hættulegri í sínum aðgerðum og uppskáru eina mark leiksins. Lokatölur 0-1 á gervigrasinu á Völlunum.
Sem fyrr segir átti FH fína spretti en það er ljóst að þær verða að vera beittari fram á við eigi þær að eiga möguleika gegn sterkari liðum. Liðið verst vel á sínum vallarhelming og heldur bolta vel en meiri áræðni vantar fyrir framan mark andstæðinganna.
Stelpurnar voru að vonum súrar að leik loknum enda ætla stelpurnar sér að vera í toppbaráttu í mótinu í sumar. Jóns og Örnu, þjálfara liðsins, bíður hinsvegar það verkefni að skerpa á sókninni fyrir næsta leik sem er gegn Tindastóli á Sauðárkróki næstkomandi fimmtudag.
Miðvarðarparið þær Sara Atladóttir og Berglind “Bella” Arnardóttir voru fremstir meðal jafningja í liði FH að þessu sinni.
Á myndinni má sjá litlu konuna með stóra nafnið Ölmu Gythu Huntingdon Willams Guðrúnardóttur Þorkells. takast á við Haukastelpur í leiknum.