Mfl. kv. Tapaði fyrir Haukum í æfingaleik í dag.
FH liðið byrjaði vel í dag og snemma í leiknum höfðu þær skorað þrjú mörk. Þar voru að verki þær Hrönn, Lovísa og Ágústa. Staðan 3-0 og sóknarleikurinn sem verið hefur vandamálið í undanförnum leikjum virkaði vel með Lovísu fremsta sem skoraði eitt og lagði upp hin tvö. En kálið er ekki sopið þó í ausuna sé komið. Í dag var varnarleikurinn slakur og Haukamenn unnu sig inní leikinn með 3 mörkum. Ágústa Sveinsdóttir bætti þó við einu fyrir FH. Staðan í hálfleik 4-3
Þegar Lovísa Erlingsdóttir, hinn ungi og efnilegi sóknarmaður FH var innt eftir því hvað hafi gerst í þeim síðari varð henni fátt um svör. Allt gekk á afturfótunum og Haukar skoruðu 3 mörk.
Lokatölur 6-4.
Að sjálfsögðu var þarna aðeins um æfingaleik að ræða og enginn stig í pottinum. Tap er hinsvegar alltaf slæmt og þá sérstaklega þegar lið hafa að því er virðist unnin leik í höndunum. Nú þurfa stelpurnar hinsvegar að snúa bökum saman og byggja upp sjálfstraust til að vinna leiki eins og þennan