samantekt íslandsmeistarar og fl
Nú þegar íslandsmóti yngri flokkana er lokið er ekki vitlaust að taka sama árangur hjá okkar flokkum. 5 fl kk tók af skarið og tryggðu sér titilinn í fjórða móti af fimm. Nokkuð öruggt hjá þeim strákum. Næst komu stelpurnar í 4 fl eldri ár og tryggðu sér sigur í B-úrslitum. Stelpurnar í 5 fl eldri töpuðu síðan í hörku úrslitaleik á móti Víking í 5 og síðasta mótinu. Síðan kom að stóra deginum sem var 1 maí í Kaplakrika. Þar fóru fram 7 úrslitaleikir í 2 fl kk , 3 fl kk og kvk, 4 fl kk og kvk, yngri og eldri. Þar var FH með 3 lið í úrslitum sem voru 4 fl kk , yngri og eldri ásamt 2 fl kk. 4 fl kk yngri byrjuðu í fyrsta leik en töpuðu á móti sterku liði Fram 28-27. Næsta FH-lið var 4 fl eldri sem spilaði á móti Þór Akureyri. Úr varð hörkuleikur sem fór í framlengingu og sigraði FH að lokum með 1 marki , 26-25. 2 fl kk var þriðja FH liðið sem spilaði til úrslita. Þetta FH lið hafði tryggt sér nýlega deildarmeistaratitilinn fyrir stuttu eftir mikla baráttu við gríðarsterkt Valslið sem hefur marga leikmenn í yngri landsliðum. Valur var einmitt mótherju FH í þessum úrslitaleik. Gríðalega flottur leikur þar sem FH-ingar sýndu sparitaktana og börðust gríðarvel allan leikinn. Þessi leikur fór í framlengingu og sigurmark FH var var skorað úr vítakasti þegar 2 sek voru eftir. Flottum vetri lokið hjá okkar yngri flokkum og geta FH-ingar verið stoltir af þessum árangri yngri flokkana.
FH fékk 4 íslandsmeistaratitla , 2 silfurhafa, 1 deildarmeistaratitil og 1 bikarmeistaratitil. FH.is óskar öllum þessum flokkum til hamingju með árangurinn.
Framtíðinn er björt í Krikanum….