Starf baðvarðar
Okkur bráðvantar öflugan karlkyns starfsmann ( það má auglýsa eftir karlmanni/konu þegar starfið felur í sér baðvörslu ) í starf baðvarðar í Kaplakrika.
Þetta er vaktavinna á mjög líflegum og skemmtilegum vinnustað eins og þið vitið.
Starfið felur í sér þrif, þjónusta við iðkendur og gesti sem koma í Krikann og margt annað sem fellur til.
Áhugasamir vinsamlegast hafið við mig í síma 895-9900 eða elsa@fh.is eða Björgu vaktstjóra s:841-9970 bjorg@fh.is